Bluetooth Headset BH 904 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Áður en rafhlaðan er hlaðin skaltu lesa
vandlega „Upplýsingar um rafhlöðu og
hleðslutæki“.

Viðvörun: Aðeins skal nota
hleðslutæki sem Nokia hefur

samþykkt til notkunar með þessari
tilteknu gerð. Ef notaðar eru aðrar gerðir
gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður
og slíkri notkun getur fylgt hætta.
Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu, sprengingu eða haft
aðra áhættu í för með sér.

Þegar aukabúnaður er tekinn úr
sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband

við innstungu.

2. Opnaðu hlífina yfir hleðslutenginu

og tengdu snúru hleðslutækisins
við tengið (10). Rauða stöðuljósið
logar meðan á hleðslu stendur.

Það tekur allt að 35 mínútur að
hlaða rafhlöðuna að fullu með
AC-6 hleðslutæki. 15 mínútna
hleðsla á rafhlöðu með AC-6
hleðslutæki veitir allt að
5 klukkustundir af taltíma.

background image

ÍSLENSKA

3. Græna stöðuljósið logar þegar

rafhlaðan er fullhlaðin.
Hleðslutækið er fyrst tekið úr
sambandi við höfuðtólið, síðan
úr rafmagnsinnstungunni. Ýttu
hlífinni yfir tengi hleðslutækisins.

Til að hlaða höfuðtólin með samhæfu
Nokia hleðslutæki sem er með 2,0 eða
3,5 mm hleðslukló, skaltu nota Nokia
CA-146C millistykki fyrir hleðslutæki
(selt sér).

Til að hlaða rafhlöðuna um USB-tengi
samhæfrar tölvu skaltu tengja einn
enda Nokia CA-101 tengisnúrunnar
(seld sér) við tengi hleðslutækisins
og hinn endann við USB-tengið.

Fullhlaðin rafhlaða endist í allt að
8 klukkustundir í tali eða allt að
160 klukkustundir í biðstöðu.

Staða rafhlöðunnar þegar höfuðtólið
er ekki tengt við hleðslutæki er
könnuð með því að ýta á rofann
á meðan kveikt er á höfuðtólinu.

Ef stöðuljósið er grænt er rafhlaðan
nægilega hlaðin. Ef ljósið er gult gæti
þurft að hlaða rafhlöðuna bráðlega. Ef
ljósið er rautt skaltu hlaða rafhlöðuna.

Þegar rafhlöðuhleðslan er lítil gefur
höfuðtólið frá sér tón á 5 mínútna
fresti og rauða stöðuljósið blikkar.