Tækið tekið í notkun
Hlutar höfuðtólsins sem sýndir eru
á forsíðunni eru: Hljóðstyrkstakki (1),
færanlegur hljóðnemi (2), hlust (3),
stöðuljós (4), rofi (5), tengi fyrir
hleðslutæki (6), hljóð-af takki (7),
svartakki (8) og hljóðnemar (9).
Áður en höfuðtólið er tekið í notkun
þarf að hlaða rafhlöðu þess og para
það við samhæft tæki.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir.
Málmefni gætu dregist að tækinu.
Ekki má geyma kreditkort eða aðra
segulmagnaða hluti með geymsluminni
nálægt tækinu því upplýsingar sem þar
eru geymdar gætu þurrkast út.