Bluetooth Headset BH 904 - Höfuðtólið parað og tengt

background image

Höfuðtólið parað og tengt

Para þarf og tengja höfuðtólið við
samhæft tæki áður en hægt er að
nota það.

Hægt er að para höfuðtólið við allt að
átta tæki en aðeins er hægt að tengja
það við tvö tæki í einu.

1. Gakktu úr skugga um að kveikt

sé á tækinu og að slökkt sé
á höfuðtólinu.

2. Kveiktu á höfuðtólinu til að para

það við tæki ef það hefur ekki verið
parað áður. Höfuðtólið fer
í pörunarhaminn og bláa
stöðuljósið fer að blikkar hratt.

Ef höfuðtólið hefur áður verið
parað við tæki skaltu gæta þess að
slökkt sé á höfuðtólinu, og halda
síðan rofanum inni í u.þ.b.

5 sekúndur þar til bláa stöðuljósið
fer að blikka hratt.

3. Kveiktu á Bluetooth í tækinu og

láttu það leita að Bluetooth-
tækjum. Nánari upplýsingar er að
finna í notendahandbók tækisins.

4. Veldu höfuðtólið af listanum yfir

þau tæki sem fundust.

5. Ef þörf krefur skaltu slá inn

aðgangskóðann 0000 til að para
og tengja höfuðtólið við tækið.

Í sumum tækjum gæti þurft að
koma á tengingunni að pörun
lokinni.

Þegar höfuðtólið er tengt við tæki
og er tilbúið til notkunar blikkar
stöðuljósið rólega í bláum lit.

Til að tengja höfuðtólið handvirkt við
eitt eða tvö þeirra tækja sem síðast
voru notuð skaltu halda svartakkanum
inni í u.þ.b. 2 sekúndur (þegar ekkert
tæki er tengt) eða koma tengingunni
á í Bluetooth-valmynd viðkomandi

background image

ÍSLENSKA

tækis. Ef tæki er tengt við höfuðtólið
og þú vilt tengja annað tæki við skaltu
koma tengingu á í Bluetooth-valmynd
tækisins.

Hugsanlega er hægt að stilla tækið
þannig að höfuðtólið tengist því
sjálfkrafa. Í Nokia tækjum er þessi
möguleiki virkjaður með því að breyta
stillingum fyrir pöruð tæki
í Bluetooth-valmyndinni.